Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

732. fundur 18. júlí 2019 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hlíðarfjall - umsókn um byggingarleyfi fyrir stólalyftu, tveimur lyftuhúsum/stjórnstöð og spennistöð

Málsnúmer 2018030402Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Stólalyftu ehf., kt. 441217-0210, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af lyftuhúsum í Hlíðarfjalli, óskað er eftir að innrétta rými fyrir spennistöð í efra lyftuhúsi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Miðhúsavegur 1 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2018090317Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. júlí 2019 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Vegagerðarinnar, kt. 680269-2899, óskar eftir breytingum á áður samþykktum teikningum af Miðhúsavegi 1. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Gleráreyrar 1, rými 45 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019060444Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 24. júní 2019 þar sem Þorvarður L. Björgvinsson fyrir hönd Arion banka ehf., kt. 581008-0150, sækir um leyfi til að innrétta rými 45 á Glerártorgi, Gleráreyrum 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorvarð L. Björgvinsson. Innkomnar nýjar teikningar 15. júlí 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Tryggvabraut 14 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2019060500Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 24. júní 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og innanhússbreytingum á Tryggvabraut 14. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 15. og 17. júlí 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Skarðshlíð 7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019070278Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. júlí 2019 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Haraldar Helgasonar sækir um byggingarleyfi til að setja plasteinangrun utan á hús sitt að Skarðshlíð 7. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Brekatún 2 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2019070318Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2019 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Brekatúns 2, húsfélags, kt. 680115-0870, sækir um leyfi fyrir breytingum í Brekatúni 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarssn.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Kaupvangsstræti 23 - umsókn um breytta notkun

Málsnúmer 2019070428Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2019 þar sem Guðríður E. Friðriksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um breytta notkun á húsnæði Deiglunnar, rými 0106, við Kaupvangsstræti 23 úr samkomustað í sýningarsal. Meðfylgjandi er samþykki Gilfélagsins.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

8.Stekkjargerði 5 - umsókn um lóðarvegg

Málsnúmer 2019070452Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. júlí 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Sigursteins Ingvarssonar sækir um leyfi til að setja upp lóðarvegg á baklóð við Stekkjargerði 5. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið enda verði settar upp fallvarnir vegna hæðarmunar.

9.Halldóruhagi 3 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019060004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. maí 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Sigurgeirs Svavarssonar ehf sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 3 við Halldóruhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 17. júlí 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf, í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 13:30.