Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

716. fundur 28. mars 2019 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Undirhlíð 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokun

Málsnúmer 2019030104Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 8. mars 2019 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Húsfélagsins Undirhlíð 1, kt. 630318-2110, sækir um byggingarleyfi fyrir uppsetningu á svalalokunarkerfi á svalir allra íbúða í húsi nr. 1 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 25. mars 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hvannavellir 14 - umsókn um breytingar á 1. hæð

Málsnúmer 2019030085Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 27. febrúar 2019 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Reita skrifstofa ehf., kt. 530117-0730, sækir um breytingar á 1. hæð Hvannavalla 14, suðurhluta. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 18. mars 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hamarstígur 25 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019020028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. mars 2019 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Sólveigar Ingunnar Skúladóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki og risi á Hamarstíg 25. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Jafnframt er óskað eftir heimild til að hefja framkvæmdir við að rífa innanhúss.
Byggingarfulltrúi heimilar niðurrif á öðru en burðarvirki, en frestar afgreiðslu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:00.