Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

706. fundur 17. janúar 2019 kl. 13:00 - 00:59 Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hafnarstræti 102, 4. hæð - gistiskálar

Málsnúmer 2018080270Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. maí 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Ef1 hf., kt. 681113-0960, sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun á 4. hæð úr skrifstofuhúsnæði í rými fyrir gistiskála. Ásamt því að sameina matshluta 01 og 02. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson ásamt nýrri skráningartöflu. Innkomnar nýjar teikningar 14. janúar 2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Margrétarhagi 6 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2017100116Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. janúar 2019 þar sem Björn Sveinsson fyrir hönd Kristjáns Elís Örnólfssonar og Rutar Hauksdóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Margrétarhaga 6. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Einar Bjarndal Jónsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Margrétarhagi 5 - 7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018090154Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2018 þar sem Guðrún Guðmundsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 5 - 7 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 20. desember 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Viðburðir - götu- og torgsala 2019

Málsnúmer 2018110176Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2018 þar sem Raffaele Marino fyrir hönd Lasagna and more ehf., kt. 430518-0380, sækir um stöðuleyfi fyrir söluvagn í Hafnarstræti á sama stað og verið hefur.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2019.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrar-kaupstaðar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

5.Viðburðir - götu- og torgsala 2019

Málsnúmer 2018110176Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. desember 2018 þar sem Thomas Piotr ehf., kt. 581113-0720, sækir um stöðuleyfi fyrir söluvagn við Hafnarstræti á sama stað og verið hefur. Meðfylgjandi er staðfesting á starfsleyfi.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 31. desember 2019.

Umsækjandi skal hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrar-kaupstaðar vegna tenginga og kostnaðar við frárennsli, vatn og rafmagn fyrir söluvagninn.

Fundi slitið - kl. 00:59.