Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

685. fundur 23. júlí 2018 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Langholt 1 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingum

Málsnúmer 2017110110Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 22. júní 2018 þar sem Aðalsteinn Snorrason fyrir hönd Reita - verslun ehf., kt. 530117-0650, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af Langholti 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Aðalstein Snorrason.

Innkomnar teikningar 22. júní 2018 ásamt fylgiskjali sem sýnir hvaða breytingar er um að ræða.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Þingvallastræti 31 - umsókn um niðurrif og endurbyggingu

Málsnúmer 2018060096Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júní 2018 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Sóllands ehf., kt. 490505-1210, sækir um leyfi til niðurrifs hússins nr. 31 við Þingvallastræti. Meðfylgjandi er matsgerð og umsögn arkitekta um ástand hússins.

Skipulagsráð féllst á niðurrif hússins á fundi 11. júlí 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Bent skal á að umsækjandi skal tilkynna byggingarstjóra og tilkynna heilbrigðiseftirliti og vinnueftirliti um framkvæmdina sbr. reglugerð nr. 705/2009.

3.Jaðarsíða 17-23 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018050083Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. maí 2018 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd BB bygginga ehf., kt. 550501-2280, sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 17-23 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 11. júní, 11. júlí og 18. júlí 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Klettagerði 2 - umsókn um leyfi fyrir stækkun bílastæðis

Málsnúmer 2018070474Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. júlí 2018 þar sem Hilmar Guðmundsson og Kristín Þórsdóttir sækja um leyfi til að stækka bílastæðið við hús sitt nr. 2 við Klettagerði. Meðfylgjandi eru myndir.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á núverandi stæði í 6 metra breytt bílastæði með 7 metra úrtaki, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Byggingarfulltrúi getur fallist á stæði fyrir hjól og kerru en ekki verður gert sérstakt úrtak í kantstein vegna þess.

Varðandi frágang á gangstétt og kantsteinum skal haft samband við umhverfis- og mannvirkjasvið.

5.Geirþrúðarhagi 4 - umsókn um frest

Málsnúmer 2016120158Vakta málsnúmer

Erindi í tölvupósti dagsettum 20. júlí 2018 frá Haraldi Árnasyni þar sem hann fyrir hönd Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, óskar eftir framlengingu á byggingafresti til 15. september 2018 fyrir lóðina Geirþrúðarhagi 4 þar sem breyting á deiliskipulagi fyrir lóðina hefur ekki tekið gildi.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Dælustöð við Ystabæjarveg - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018060490Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júní 2018 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir dælustöð úr timbri á lóð nr. 7 við Ystabæjarveg í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

7.Eyrarlandsvegur 28 - umsókn um byggingarleyfi fyrir aðkomu að stjörnuskoðun

Málsnúmer 2016060090Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júní 2016 þar sem Gísli Kristinsson fyrir hönd Ríkiseigna kt. 690981-0259, sækir um breytingar fyrir hús nr. 28 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar. Innkomnar nýjar teikningar 18. júlí 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.