Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

676. fundur 02. maí 2018 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson byggingarfulltrúi
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Stapasíða 14 - umsókn um úrtak á kantsteini

Málsnúmer 2018040224Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. apríl 2018 þar sem Dóra Sif Sigtryggsdóttir sækir um úrtak á kantsteini við hús sitt nr. 14 við Stapasíðu. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði, með 7 metra úrtaki í kantstein, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

2.Njarðarnes 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2018030307Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir tveggja hæða steinsteyptu iðnaðar- og geymsluhúsnæði á lóð nr. 12 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 22. og 27. mars 2018, 9. og 18. apríl 2018. Óskað er eftir heimild til jarðvegsskipta.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði en heimilar umsækjanda að hafa jarðvegsskipti fyrir húsinu.

3.Hamarstígur 30 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2017020118Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. apríl 2018 þar sem Sæmundur Óskarsson fyrir hönd Svartra fata ehf., kt. 690102-4550, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 30 við Hamarstíg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sæmund Óskarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Norðurvegur 15 - stöðuleyfi fyrir 20 feta geymslugám

Málsnúmer 2018040039Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. apríl 2018 þar sem Tómas Jónsson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóð nr. 15 við Norðurveg í Hrísey, vegna nauðsynlegra endurbóta á húsinu. Staðsetning yrði á miðri lóð eins fjarri lóðarmörkum og hægt er. Innkomnar nýjar upplýsingar varðandi staðsetningu og rök fyrir beiðninni.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 1. maí 2019.

5.Davíðshagi 2 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2017060111Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi á lóð nr. 2 við Davíðshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 26. apríl 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Davíðshagi 4 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2017060027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2018 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi á lóð nr. 4 við Davíðshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 26. apríl 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.