Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

666. fundur 15. febrúar 2018 kl. 13:30 - 15:05 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill byggingarfulltrúa
  • Björn Jóhannsson
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Margrétarhagi 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2017120492Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. desember 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Hrauna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 10 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 15. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði

2.Hafnarstræti 73 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2018010064Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. janúar 2018 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf. sækir um að leyfi til að setja glugga á vesturhlið, neyðarútganga á norðurhlið og gera breytingar og útbúa 16 eininga gistiheimili í húsi nr. 73 við Hafnarstræti.

Innkomnar nýjar teikningar 8. febrúar 2018 þar sem gert er ráð fyrir undanþágu frá kröfu um lyftu í húsið.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar erindinu og óskar eftir umsögn samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra um erindið.

3.Gránufélagsgata 19 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipluagi

Málsnúmer 2018020036Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. febrúar 2018 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Gleypis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 19 við Gránufélagsgötu. M.a. á að færa snyrtingar í viðbyggingu þar sem áður var stigi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 8. febrúar 2018 og samþykki eldvarnareftirlits.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

4.Kringlumýri 20 - umsókn um leyfi fyrir útihurð

Málsnúmer 2018010023Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. janúar 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Ólafs Stefánssonar sækir um leyfi til að setja útihurð á austurhlið neðri hæðar húss nr. 20 við Kringlumýri ásamt tröppum. Meðfylgjandi er teikning eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

5.Hrappsstaðir 146946 - umsókn um flutning á húsi

Málsnúmer 2016080112Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. ágúst 2016 þar sem Jóhann Freyr Jónsson sækir um leyfi til að flytja sumarhús, sem byggt var á Vatnsenda í Ólafsfirði, að Hrappsstöðum og gera á því lagfæringar samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

6.Margrétarhagi 1 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2017050068Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. febrúar 2018 þar sem Bjarki Viðar Garðarsson fyrir hönd Norðausturs ehf. sækir um sex mánaða frest á framkvæmdum á lóð nr. 1 við Margrétarhaga.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir framkvæmdafrest til 31. júlí 2018.

Fundi slitið - kl. 15:05.