Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

665. fundur 08. febrúar 2018 kl. 13:00 - 13:20 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson byggingarfulltrúi
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Melgerði 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2017090084Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. september 2017 þar sem Þórir Barðdal sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss á húsi sínu númer 2 við Melgerði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Emil Þór Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 6. febrúar 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Margrétarhagi 10 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2017120492Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. desember 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Hrauna ehf., kt. 530106-2090, sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 10 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 31. janúar 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:20.