Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

663. fundur 25. janúar 2018 kl. 13:00 - 13:40 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson byggingarfulltrúi
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Strandgata 3 - eignarhluti 0102, verslun og skrifstofurými

Málsnúmer 2018010325Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. janúar 2018 þar sem Sólveig L. Tryggvadóttir fyrir hönd Símans hf. sækir um byggingarleyfi til að breyta rými 0102 í húsi nr. 3 við Strandgötu í verslun og skrifstofurými. Meðfylgjandir eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Hrafnagilsstræti 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir inngangi í kjallara

Málsnúmer 2017020060Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. febrúar 2017 þar sem Sólrún Smáradóttir og Sigþór Sigmarsson sækja um byggingaleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 6 við Hrafnagilsstræti. Sótt er um leyfi fyrir byggingu nýs inngangs í kjallara. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 23. janúar 2018.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:40.