Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

621. fundur 23. febrúar 2017 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson byggingarfulltrúi
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Ægisnes 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016120135Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. desember 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Króksverks ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 2 við Ægisnes. Um er að ræða 474 fermetra nýbyggingu fyrir starfsemi malbikunarstöðvarinnar Norðurbiks. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. febrúar 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Ráðhústorg 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016110013Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. nóvember 2016 þar sem Förli ehf. og Natten ehf. sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum á 2., 3. og 4. hæð og endurnýjun á þaki á Ráðhústorgi 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 16. febrúar 2017.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Skipagata 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2017020105Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. febrúar 2017 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Förla ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á eignarhaldi í stigagangi á efri hæðum húss nr. 2 við Skipagötu, sem og byggingarleyfi fyrir breytingum á rýmum á 2. og 3. hæð sem breyta á í geymslur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Þórunnarstræti 83 - umsókn um byggingarleyfi - breytingar í kjallara

Málsnúmer 2016100028Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2016 þar sem Gísli Rúnar Magnússon og Greta Kristín Hilmarsdóttir sækja um breytingar á húsi nr. 83 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 22. febrúar 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Glerárgata 34 - umsókn um breytingar á 1. hæð

Málsnúmer 2017020086Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. febrúar 2017 þar sem Árni Árnason fyrir hönd Vísnýjar ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á 1. hæð í húsi nr. 34 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 13:30.