Lára Halldóra Eiríksdóttir

Lára Halldóra Eiríksdóttir

Sjálfstæðisflokkur
larahalldora@akureyri.is

Lára Halldóra Eiríksdóttir er fædd á Akureyri 23. apríl 1973. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1993 og BEd. prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1997. Lára hefur starfað við kennslu í yfir tvo áratugi, en starfar í dag sem námsráðgjafi í Giljaskóla.

Lára Halldóra var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri frá 2018-2022 ásamt því að sitja í velferðarráði.

Lára Halldóra á fjögur börn, Halldór Yngva, Elvar Örn, Sólveigu Alexöndru og Þorgerði Katrínu.

Síðast uppfært 13. janúar 2023