Brynjólfur Ingvarsson

Brynjólfur Ingvarsson

Óflokksbundinn
brynjolfur.ingvarsson@akureyri.is

Brynjólfur Ingvarsson er eldri borgari, áttræður læknir á eftirlaunum, 5 barna faðir, á 10 barnabörn og eitt langafabarn. Brynjólfur starfaði í hálfa öld sem geðlæknir á Akureyri. Aðaláhugamál Brynjólfs eru hestamennska, bóklestur og bókaskrif. Síðastliðinn áratug hefur hann skipt sér af pólitík á Akureyri og var fulltrúi Flokks fólksins í bæjarstjórn Akureyrar frá 7. júní til 4. október 2022.

Þann 4. október 2022 tilkynnti Brynjólfur að hann hefði sagt sig úr Flokki fólksins en hyggðist sitja áfram í bæjarstjórn Akureyrarbæjar sem óflokksbundinn fulltrúi.

Brynjólfur er í leyfi frá 18.10.2023 til 15.04. 2024 og Jón Hjaltason sinnir störfum hans á meðan.

Síðast uppfært 18. október 2023