Tryggvabraut og atvinnusvæði norðan Tryggvabrautar

Akureyrarbær vinnur að gerð deiliskipulags fyrir Tryggvabraut og atvinnusvæði norðan hennar í samvinnu við Vegagerðina. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og er markmið skipulagsvinnunnar að útfæra samræmt og heildstætt skipulag fyrir svæðið. Megináhersla er lögð á endurbætur Tryggvabrautar, aukið umferðaröryggi og bættar tengingar gangandi og hjólandi vegfarenda ásamt því að skilgreina byggingarheimildir á atvinnulóðum milli Tryggvabrautar og Glerár.

Deiliskipulagsdrögin má nálgast hér og greinargerð með tillögunni hér. Þá má ennfremur skoða forsendur fyrir vega- og stígahönnun á svæðinu hér og hér.

Þriðjudaginn 14. júní 2022 voru drög að deiliskipulagi kynnt á opnu húsi í Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Þar gátu íbúar skoðað skipulagsgögnin og veggspjöld sem Efla verkfræðistofa útbjó í kynningarskyni. Veggspjöldin má sjá hér og hér.

Eru íbúar og aðrir hagsmunaaðilar hvattir til að kynna sér skipulagið og koma ábendingum á framfæri. Skriflegar ábendingar má leggja fram á kynningarfundinum eða senda bréfleiðis til þjónustu- og skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9 eða á netfangið skipulag@akureyri.is.

Síðast uppfært 05. mars 2024