7.mar

Spilaklúbbur fyrir börn á aldrinum 10-13 ára

Spilaklúbbur fyrir börn á aldrinum 10-13 ára

Þekkir þú barn sem hefur gaman af að spila? 

Í vor mun Amtsbókasafnið halda áfram með spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 10-13 ára. Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:00. Fyrsti spilafundur ársins 2018 verður haldinn miðvikudaginn 10. janúar. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, mun leiða hópinn.

Allir krakkar á aldrinum 10-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald. 

Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.

Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is

Spilaklúbburinn mun hittast á eftirfarandi dögum í vor: 

10. janúar

24. janúar

7. febrúar

21. febrúar

7. mars

21. mars

4. apríl

18. apríl

2. maí

16. maí

(Birt með fyrirvara um breytingar)