Upplýsingar um viðburð
Þekkir þú barn sem hefur gaman af að spila?
Í haust fer Amtsbókasafnið að stað með spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 10-13 ára. Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Fyrsti spilafundur verður haldinn þann 20. september. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, mun leiða hópinn. Lengd hvers spilafundar fer svolítið eftir spili hverju sinni.
Allir krakkar á aldrinum 10-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is
Spilaklúbburinn mun hittast á eftirfarandi dögum í haust:
20. sept.
4. okt.
18. okt.
1. nóv.
15. nóv.
29. nóv.
13. des.
Sjáumst hress!