okt-des

Sögustund á fimmtudögum

Sögustund á fimmtudögum

Sögustundir eru á fimmtudögum kl: 16.30 í barnabókadeild.

Í sögustundum eru lesnar 1-2 bækur og svo er boðið upp á létt föndur, leiki eða verkefni. Einnig eru litablöð og litir í boði.

Sögustundirnar byrja um miðjan september og eru fram í desember. Hefjast svo aftur í janúar og eru fram í maí.

Yfir vetrartímann eru einnig sögustundir (eða aðrar uppákomur) einn laugardag í mánuði kl. 14 á Orðakaffi sem staðsett er á 1. hæð safnsins. Sögustundirnar eru auglýstar inni á Amtsbókasafni og á Facebook-síðu safnsins.

Bangsasögustundir
Þann 27. október er Alþjóðlegi bangsadagurinn og af því tilefni eru lesnar bangsasögur í október. Einnig er leikskólabörnum boðið að koma á bókasafnið með kennurum sínum og hlusta á bangsa segja bangsasögu. Í janúar fer svo bangsi í leikskóla bæjarins og heilsar uppá börnin.