jún-júl

Kona á skjön | Sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi

Kona á skjön | Sýning um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi

KONA Á SKJÖN
Um ævi og störf Guðrúnar frá Lundi
Opnun föstudaginn 8. júní kl. 14:00

Rithöfundarferill Guðrúnar frá Lundi er sannkallað ævintýri í íslenskri bókmenntasögu. Óþekkt kona norðan úr Skagafirði verður metsöluhöfundur nánast á einni nóttu og bækurnar tróna á toppi vinsældarlista í rúma tvo áratugi. Hún er orðin 59 ára þegar fyrsta skáldsagan kemur út, eftir það skrifar hún 27 bækur í 11 skáldverkum. Þetta gerðist í heimi fjölda hindrana fyrir alþýðukonu sem þráði að skrifa skáldsögur. 

Guðrún var dáð af stórum hluta þjóðarinnar en raddsterkir áhrifamenn flokkuðu verk hennar með erlendum afþreyingarbókmenntum og reyfararusli. Saga Guðrúnar birtir því bæði ævintýralegar og endurteknar vinsældir en einnig þann þunga undirtón háðs sem einkenndi um tíma alla umræðu um verk hennar. 

Sýningin er farandsýning og var fyrst sett upp á Sauðárkróki sumarið 2017, þá á Borgarbókasafni Reykjavíkur og síðast á Bókasafni Akraness. Sýningarhöfundar og hönnuðir eru Kristín Sigurrós Einarsdóttir, kennari og leiðsögumaður og Marín Guðrún Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar. 

K A F F I K V I S S
Við opnun munu Marín og Kristín segja nokkur orð og að því loknu mun Marín stýra spurningakeppni eða kaffikvissi þar sem spurt verður úr Dalalífi, höfuðverki Guðrúnar frá Lundi. Kaffikvissið er hugsað til gamans og eru spurningar laufléttar fyrir þá sem hafa lesið Dalalíf. Fyrir lengra komna er hugsanlegt að spurningar úr öðrum verkum höfundar slæðist með, sérílagi ef skera þarf úr með sigurlið. 

Heitt á könnunni og léttar veitingar
Sýningin stendur til 30. júlí, verið hjartanlega velkomin!