28.mar

Handavinnuhópurinn Hnotan hittist

Handavinnuhópurinn Hnotan hittist

HANDAVINNUKLÚBBUR

Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap? 

Í vor mun Amtsbókasafnið halda áfram með handavinnuklúbb, sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.

Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Svala Hrönn Sveinsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með kaffi, handavinnublöð og -tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu. Hópurinn mun hittast fyrst á nýju ári 17. janúar á 1. hæð safnsins, þar sem Orðakaffi er staðsett.

Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Svala á netfanginu svala@akureyri.is

Handavinnuklúbburinn er á Facebook.

Prjóna''fundir'' verða á eftirfarandi dögum:  

17. janúar

31. janúar

14. febrúar

28. febrúar

14. mars

28. mars

11. apríl

25. apríl

9. maí

Amtsbókasafnið á Facebook og Instagram