Upplýsingar um viðburð
Langar þig til að prjóna, hekla, sauma og spjalla í góðum félgsskap?
Í haust fer Amtsbókasafnið að stað með handavinnuklúbb, sem öllum er velkomið að taka þátt í, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Klúbburinn mun hittast á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, annan hvern miðvikudag kl. 17:00-18:30. Svala Hrönn Sveinsdóttir, bókavörður, verður á staðnum með kaffi, handavinnublöð og -tímarit. Athugið, ekki er um kennslu í handavinnu að ræða, heldur er frekar lögð áhersla á góðan félagsskap og að hópurinn hjálpist að innbyrðis. Allir eru velkomnir með prjóna, heklunálar og aðra handavinnu. Hópurinn mun hittast fyrst þann 27. september.
Hópurinn verður með aðstöðu á 1. hæð safnsins, þar sem Orðakaffi er staðsett.
Engin þörf er á að skrá sig í hópinn, nóg er að mæta á staðinn. Nánari upplýsingar veitir Svala á netfanginu svala@akureyri.is
Handavinnuklúbburinn er á Facebook.
Hópurinn mun hittast á eftirfarandi dögum:
27. sept.
11. okt.
25. okt.
8. nóv.
22. nóv.