Sími: 462 4047
Netfang: kjarni@est.is
Kort af svæðinu
Kjarnaskógur er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa, um 800 hektara að stærð. Við upphaf skógræktar á svæðinu um 1950 var landið skóglaust með öllu. Síðan þá hefur verið plantað um 1.5 milljón plantna og er þar mikil gróðursæld og gott skjól. Svæðið er í eigu Akureyrarbæjar en í umsjá Skógræktarfélags Eyfirðinga. Í Kjarnaskógi eru upplýstar trimmbrautir og göngustígar. Þegar snjóar er brautin troðin og sporuð fyrir skíðagöngufólk. Þar eru einnig ýmis líkamsræktartæki, svo og bekkir til hvíldar fyrir þá sem þess þurfa.
Í skóginum má meðal annars finna:
- Tvö leiksvæði með fjölda leiktækja
- Blakvöll
- Snyrtingar
- Yfirbyggða grillaðstöðu sem hentar jafnt einstaklingum sem hópum
- Stærsta skipulagða gönguskíðasvæði landsins (í skóglendi) með allt að 20 km troðnum brautum, þar af eru 6 km upplýstir. Upplýsingar um skíðafæri eru uppfærðar í síma 878 4050
- Fyrstu sérhönnuðu fjallahjólabraut landsins
- Um 12 km af malarbornum stígum, þar af eru 6 km upplýstir, auk fjölda annarra skógarstíga