Þrjár frábærar Ynjur: Ragnhildur Kjartansdóttir, Sunna Björgvinsdóttir og Silvía Rán Björgvinsdóttir. Mynd: mbl.is/Skapti Hallgrímsson.
Ásynjur og Ynjur spiluðu úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí í gærkvöldi í Skautahöllinni á Akureyri. Bæði lið eru á vegum Skautafélags Akureyrar og líklega er leitun að slíkum úrslitaleik í nokkurri hópíþótt á Íslandi.
Hart var barist allan leikinn og voru það Ynjur sem leiddu eftir tvo fyrstu leikhlutana, 1:0 og 2:1. Í lokaleikhlutanum héldu hinar ungu Ynjur haus og tvö mörk þeirra á skömmum tíma gerðu út um leikinn. Lokatölur 4:1. Stór hluti leikmanna er enn í grunnskóla og er afrek liðsins mikið.
Ynjur með þjálfara sínum. Mynd: mbl.is/Skapti Hallgrímsson.
Frétt og myndir af mbl.is.