Þýskir listamenn í Ketilhúsinu

Katinka Theis og Immo Eyser.
Katinka Theis og Immo Eyser.

Þriðjudaginn 21. febrúar kl. 17-17.40 halda þýsku listamennirnir Immo Eyser og Katinka Theis Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Various Forms of Spatial Perception. Aðgangur er ókeypis.

Í fyrirlestrinum munu þau ræða um listsköpun sína sem m.a. rýnir í stórbrotna eiginleika landslags og arkitektúrs í gegnum collage-myndir, innsetningar og vídeóverk.

Katinka Theis (f. 1975) stundaði listnám við Alanus lista- og félagsfræðiháskólann í Bonn og kláraði mastersgráðu frá Weissensee listaskólanum.  Immo Eyser (f. 1969) lagði stund á listnám og menningarkennslu við Alanus lista- og félagsfræðiháskólann í Bonn. Auk þess að vera vídeólistamaður kennir hann í listasmiðjum í Berlín. Þau búa bæði og starfa í Berlín.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Rebekka Kuhnis, Aðalsteinn Þórsson, Susan Singer og Ingibjörg Sigurðardóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan