Snjófljóðavarnahlið í Hlíðarfjalli

Slysavarnadeildin á Akureyri afhenti skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli snjóflóðavarnahlið um liðna helgi. Hliðið var sett upp við ofan við Stromplyftuna, efstu skíðalyftu svæðisins en þaðan halda skíðamenn gjarnan af stað ætli þeir að skíða utan hefðbundinna brauta fjallsins. Í hliðinu sjálfvirkur búnaður sem lætur skíða- og göngufólk vita hvor snjóflóðaýlar þeirra séu í lagi eða rétt stilltir, ásamt því að veita almennar upplýsingar um snjóflóðavarnir.

Snjóflóðaýlir er mikilvægt öryggistæki sem sífellt fleira göngu-, skíða- og sleðafólk ber á sér. Ýlirinn sendir frá sér útvarpsbylgjur sem auðveldar leit að fólki í snjóflóðum. Við afhendinguna sagði Halldóra Bjarney Skúladóttir, formaður Slysavarnadeildarinnar á Akureyri að hliðið væri veigamikill þáttur í að auka vitund fólks um mikilvægi snjóflóðaýla meðal þeirra sem stunda fjallamennsku á vetrum. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir að hliðið og aukin notkun snjóðflóðaýla auki til muna öryggi þeirra sem vilja ganga ofan skíðasvæðisins og skíða utan troðinna brauta.

Hliðið í Hlíðarfjalli er annað sinnar tegundar sem Slysavarnafélagið Landsbjörg setur upp nú í vetur. Þriðja hliðið í Eyjafirði verður sett upp í Glerárdal sem er vinsælt útvistasvæði, bæði meðal göngu- og vélsleðafólks. Innan tíðar verður snjóflóðavarnahlið sett upp í Landmannalaugum en það svæði nýtur mikilla vinsælda meðal vélsleðafólks. Þá vera fljótlega sett upp hlið við skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli.

Á meðfylgjandi mynd eru slysavarnakonurnar Sólveig Skjaldardóttir, Ásdís Helgadóttir, Helga Halldórsdóttir og Halldóra Skúladóttir sem afhentu hliðið sem Guðmundur Karl Jónsson tók við fyrir hönd Skíðastaða í Hlíðarfjalli.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan