Síðuskóli sigraði í Skólahreysti

Lið Síðuskóla fagnar sigrinum í beinni útsendingu Sjónvarpsins.
Lið Síðuskóla fagnar sigrinum í beinni útsendingu Sjónvarpsins.
Síðuskóli varð í gærkvöldi meistari í Skólahreysti í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Lið skólans fékk samanlagt 59 stig, sex og hálfu stigi meira en Lindaskóli sem varð í öðru sæti. Laugalækjarskóli varð í þriðja sæti, Brekkuskóli í því fjórða og Holtaskóli í fimmta sæti.
 
Síðuskóli setti nýtt met í Hraðaþrautinni. Keppendurnir tveir fóru brautina á tveimur mínútum og þremur sekúndum. Nánari úrslit má sjá á heimasíðu keppninnar, auk þess sem hægt er að horfa á úrslitin aftur á Sarpnum á ruv.is.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan