Kynningarfundur um Hlíðarfjall

Mynd: Auðunn Níelsson.
Mynd: Auðunn Níelsson.

Kynningarfundur um starfsemina í Hlíðarfjalli sem er sérstaklega ætlaður fólki sem starfar í ferðaþjónustu verður haldinn í Hlíðarfjalli miðvikudaginn 15. febrúar kl. 12-13.

Leitað verður svara við spurningum sem varða þá möguleika sem skíðasvæðið í Hlíðarfjalli hefur upp á að bjóða. Hvað er að gerast í Hlíðarfjalli? Hvað getur þú gert í Hlíðarfjalli? Hvaða tækifæri í ferðaþjónustu eru fólgin í skíðasvæði sem er eitt það albesta á landinu?

Skráningarfrestur á fundinn er þriðjudagurinn 13. febrúar. Á fundinum verður boðið upp á súpu, kaffi og skíði í eftirmála.

Ekki er tekið fundargjald og allir þeir sem bæði hafa vitneskju og vilja fræðast meira eru hvattir til þess að mæta. 

Skráningarfrestur á fundinn er þriðjudagurinn 13. febrúar. Áhugasamir skrái sig á heimasíðu Hlíðarfjalls HÉR.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan