Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði og Húsverndarsjóði

Menningarsjóður Akureyrar auglýsir eftir umsóknum um styrki.  Auglýst er eftir umsóknum um samstarfssamninga og verkefnastyrki. Samstarfssamningar skulu stuðla að fjölbreyttu menningarlífi á Akureyri. Hægt er að sækja um samstarf til tveggja eða þriggja ára í senn. Við úthlutun er litið til fjölbreytileika í starfsemi,aldurs þátttakenda, jafnréttis og sýnileika. 
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir

Hinvegar er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki. Verkefnin skulu auðga menningarlífið í bænum,hafa sérstöðu og fela í sér frumsköpun.
Vegna 100 ára afmælis Leikfélags Akureyrar verða 500.000 kr. eyrnamerktar verkefnum tengdum afmælinu.
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir

Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2017.

Upplýsingar um reglur Menningarsjóðs og Menningarstefnu Akureyrar 2013-2018
eru á heimasíðu Akureyrarbæjar
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/reglur-og-samthykktir/menningarmal

Húsverndarsjóður Akureyrar
Sjóðnum er ætlað að vinna að verndun húsa og mannvirkja á Akureyri. Veittir verða tveir styrkir að upphæð kr. 250.000 kr. hvor.
Upplýsingar um reglur sjóðsins eru á heimasíðu Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/reglur-og-samthykktir/menningarmal
Sótt er um á heimasíðu Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is/is/ibuagatt/umsoknir

Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2017.

Ákvarðanir um styrkveitingarnar eru teknar af stjórn Akureyrarstofu.  

Nánari upplýsingar veitir Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri viðburða- og menningarmála í netfanginu huldasif@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan