Vorhreinsun í fullum gangi: Áætlun 11.-15. maí

Vorhreinsun á Akureyri heldur áfram af fullum krafti. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar.

Hreinsun hefur gengið vel í vikunni og er nokkurn veginn á áætlun. Í næstu viku eru Norðurbrekka (Mýrarvegur að Þórunnarstræti) og Suðurbrekka (Dalsbraut að Þórunnarstræti) á dagskrá, auk þess sem stefnt er að því að fara í Teigahverfi og Naustahverfi. 

Hérna er verkplan næstu viku. Smelltu á myndina til að stækka hana:

Áður en sópað er í einstökum hverfum/húsagötum eru íbúar látnir vita á síðu viðkomandi hverfis á Facebook auk þess sem merkingar eru settar upp í hverfinu. Íbúar eru hvattir til að sópa og þrífa við hús sín áður en götur eru sópaðar sem og að færa bifreiðar og önnur farartæki af almennum svæðum í götum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan