Virðum lóðarmörk

Loftmynd af hluta Óseyrar.
Loftmynd af hluta Óseyrar.

Hluti af hreinsunarátaki Akureyrarbæjar nú í haust er að tryggja að fólk og fyrirtæki virði lóðamörk og geymi ekki eigur sínar, tæki eða rusl sem fara ætti til förgunar eða endurvinnslu, utan lóðarmarka á landi sem sveitarfélagið hefur til umráða.

Í næsta áfanga þessa átaks verður sjónum beint að Óseyri og Austursíðu. Á meðfylgjandi loftmyndum má sjá lóðir við götur í hverfunum afmarkaðar með bláum línum og af myndinni má ljóst vera að ekki virða allir lóðarmörk.

Þeim vinsamlegu tilmælum er beint til fyrirtækja í þessum hverfum að taka til á sínum lóðum og færa það sem tilheyrir rekstri þeirra af bæjarlandinu og inn á lóðir sínar.

Í samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra segir orðrétt: „Óheimilt er að skilja eftir á víðavangi, flytja, dreifa eða geyma lausamuni á þann hátt að valdið geti slysum, mengun eða lýti í umhverfinu. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti, svo sem bílflök, bílhluta, kerrur, vélar, tæki, landbúnaðarplast, byggingaefni, báta, skipsskrokka og annað sambærilegt“ og ennfremur: „Óheimilt er að geyma skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, kerrur, tæki, vinnuvélar, báta eða aðra hluti á almennum bifreiðastæðum, á götum eða á almannafæri.“

Á næstu dögum munu bæjarstjóri og starfsmenn sveitarfélagsins heimsækja fyrirtæki í hverfunum til að ræða málin og fylgja þessum tilmælum eftir.

Loftmynd af Austursíðu á pdf-formi.

Loftmynd af Óseyri á pdf-formi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan