Frá Akureyrarvöku í fyrra. Mynd: Helga Gunnlaugsdóttir.
Nú er unnið að undirbúningi Akureyrarvöku sem haldin verður 30.-31. ágúst nk. Akureyrarstofa auglýsir eftir skemmtilegum og skapandi atriðum eða uppákomum sem tengst gætu hátíðinni og sett á hana alls kyns litrík blæbrigði.
Bæði fyrirtæki og einstaklingar taka þátt í viðburðum á Akureyrarvöku og það er endalaust pláss fyrir fleiri. Þetta er því tilvalið tækifæri til að láta ljós sitt skína í afmælisveislu Akureyrarbæjar.
Fjöldi bakhjarla styður einnig við hátíðina með ýmsum hætti. Hér er um að ræða góða leið til að auka sýnileika fyrirtækja í höfuðstað Norðurlands.
Hægt er að senda inn hugmyndir eða fyrirspurnir á netfangið akureyrarvaka@akureyri.is eða afla upplýsinga í síma 460 1157.