Viltu taka þátt í Listasumri 2021?

Högni Egilsson og strengjasveit í Listasafninu á Akureyri 2019. Ljósmynd: Lilja Guðmundsdóttir.
Högni Egilsson og strengjasveit í Listasafninu á Akureyri 2019. Ljósmynd: Lilja Guðmundsdóttir.

Akureyrarstofa leitar að spennandi og skemmtilegum viðburðum og listasmiðjum fyrir Listasumar á Akureyri sem hefst 2. júlí og lýkur 31. júlí 2021. Í ár er Listasumar með breyttu sniði og áhersla lögð á færri en stærri viðburði. Einnig verður komið til móts við vaxandi áhuga á listasmiðjum og þeim fjölgað.

Í boði eru fjórir 150.000 kr. verkefnastyrkir fyrir staka viðburði á fyrirfram ákveðnum dögum og stöðum, einn 180.000 kr. styrkur fyrir helgarviðburð í Deiglunni og sex styrkir fyrir tveggja eða þriggja daga listasmiðjum fyrir börn eða fullorðna.

Styrkjum fylgir afnot af rými í Deiglunni, Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Davíðshúsi, Minjasafninu á Akureyri eða Rósenborg ásamt aðgangi að kynningarefni Listasumars og tækjabúnaði í ákveðnum rýmum.

Nánari upplýsingar um styrkina er að finna á heimasíðunni listasumar.is.

Síðasti skiladagur umsókna er til og með 23. maí.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan