Viðvörun vegna svifryksmengunar

Þar sem veðurhorfur í dag og næstu daga eru þannig að götur eru þurrar, hægur vindur og kalt í veðri má búast við að svifryksmengun á Akureyri fari yfir heilsuverndarmörk. Fólk er hvatt til að draga úr bílanotkun, nota almenningssamgöngur og ganga.


Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðagatna. Á heimasíðu Akureyrarbæjar eru gildi svifryks ekki rétt sem stendur og er fólki bent á að skoða stöðu mála á vef Umhverfisstofnunnar og velja Akureyri sem mælistöð. Til að fá upp gildi fyrir stöðu mála hér er ýtt á hnappinn fyrir Akureyri.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan