Viðræður um leigu á Sigurhæðum

Stjórn Akureyrarstofu hefur samþykkt að ganga til viðræðna við Hótel Akureyri um leigu á Sigurhæðum. 

Auglýst var eftir áhugasömum leigjendum í nóvember. Alls bárust fjögur tilboð. Við yfirferð á framlögðum tilboðum og hugmyndum um fyrirhugaða starfsemi gilti menningarlegt vægi 50% af mati og leigufjárhæð 50%. 

Með hliðsjón af því samþykkti stjórn Akureyrarstofu í gær að gengið yrði til viðræðna við Hótel Akureyri um leigu á Sigurhæðum. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan