Vetrartíð á Akureyri - snjómokstur í fullum gangi

Vetrartíð á Akureyri.
Vetrartíð á Akureyri.

Snjó hefur kyngt niður á Akureyri síðustu tvo sólarhringa og enn snjóar. Unnið er að snjómokstri og er mikill fjöldi tækja í notkun á vegum bæjarins og verktaka.

Stígamokstur gengur vel, en byrjað var um kl. 5 í morgun að moka stíga samkvæmt forgangskorti

Allar götur í fyrsta forgangi eru færar og er áfram unnið samkvæmt forgangslistanum. Stefnt er að því að moka íbúðargötur fljótlega. 

Smelltu hér til að skoða upplýsingar um vetrarþjónustu Akureyrarbæjar og vinnureglur sem gilda um snjómokstur. 

Ljóst er að það tekur alltaf ákveðinn tíma að hreinsa götur og stíga bæjarins eftir snjókomu sem þessa, en allir eru að gera sitt besta. Eins og flestir íbúar á Akureyri vita þá tekur allt aðeins lengri tíma á dögum sem þessum og þá gildir að sýna þolinmæði og tillitssemi. 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan