Verndum fuglana

Sérstakar samþykktir um bæði hunda- og kattahald eru í gildi hjá Akureyrarbæ. Þar er meðal annars fjallað um lausagöngu hunda og bann við næturbrölti katta utandyra. Mikilvægt er að hafa þessi atriði í huga, sérstaklega á þessum árstíma þegar varp fugla er hafið í bæjarlandinu og utan þess. 

Takmarka þarf lausagöngu katta eins og unnt er og sérstaklega yfir nóttina sem er þeirra uppáhalds veiðitími. Ábyrgir kattaeigendur hengja bjöllur í hálsólar katta sinna og halda þeim innandyra að nóttu fuglunum til verndar. Mikilvægt er að kattaeigendur fylgist vel með köttum sínum yfir varptíma fugla og á meðan ungar eru að verða fleygir.

Hundaeigendur eru beðnir að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.

Berum virðingu fyrir náttúrunni og viðhöldum fjölbreyttu fuglalífi í bæjarlandinu.

 

Samþykkt um hundahald í Akureyrarkaupstað

Samþykkt um kattahald í Akureyrarkaupstað

Einnig má skoða leiðbeiningar á vef fuglaverndar. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan