Verkefnisstjóri Jónsmessuhátíðar, Listasumars og Akureyrarvöku

Akureyrarstofa auglýsir starf verkefnastjóra Jónsmessuhátíðar, Listasumars og Akureyrarvöku laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf í júní, júlí og ágúst en hlutastarf í mars, apríl, maí og september.

Verkefnisstjórinn heldur utan um skipulagningu og framkvæmd hátíðanna í samvinnu við starfsfólk Akureyrarstofu og Listasafnsins á Akureyri. Listasumar er heildstæð dagskrá menningarviðburða á Akureyri frá Jónsmessu til ágústloka sem kynnt er undir einum hatti en Akureyrarvaka er menningarhátíð sem stendur frá föstudagskvöldi til laugardagskvöld í lok ágúst.

Nánari upplýsingar um starfið er að finna hér á heimasíðunni þar sem sótt er um rafrænt.

Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2018

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan