Verðtilboð í ræstingu fyrir Oddeyraskóla

Oddeyrarskóli - myndin er fengin af vef Oddeyrarskóla
Oddeyrarskóli - myndin er fengin af vef Oddeyrarskóla

Akureyrarbær auglýsir eftir tilboðum í ræstingar fyrir Oddeyraskóla. Áætlaður samningstími er 1 skólaár, frá 20.ágúst 2023 - 10.júní 2024, með möguleika á framlengingu um 2 skólaár.

Tilboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 8. júní.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

https://ibuagatt.akureyri.is/newapplication.aspx?id=gbfTHbFSrkuIWARj_LxF_g&ref=7yASVvNtZ0j76eg5nwfog1

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 10:50 þann 22. júní 2023. Tilboð verða opnuð sama dag kl 11:15.

Nánari upplýsingar um framkvæmd verðtilboðs eða tilboðsgögn veitir Hrafnhildur Sigurðardóttir (hrafnhildursig@akureyri.is) á fjársýslusviði Akureyrarbæjar.