Vel heppnað NorðurOrg á Akureyri

Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Norðurlandi, NorðurOrg, fór fram í Hofi föstudaginn 24. janúar.

Um 450 ungmenni úr 8-10. bekk á Akureyri mættu og skemmtu sér konunglega á söngkeppninni og á dansleiknum sem fylgdi í kjölfarið.

Fjögur söngatriði komu frá félagsmiðstöðvunum á Akureyri og fór svo að Sóley Eva úr félagsmiðstöðinni Tróju og Ásdís Birta úr félagsmiðstöðinni Undirheimum komust áfram og taka því þátt í söngkeppni Samfés 2020 sem fram fer í Laugardagshöll í mars.

Til hamingju!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan