Varað við svifryksmengun á Akureyri

Varað er við miklu svifryki á Akureyri í dag og næstu daga. Kalt er í veðri, hægur vindur og götur að mestu þurrar og því má búast við að svifryksmengun fari yfir heilsuverndarmörk.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni við miklar umferðargötur.

Hér er hægt að sjá upplýsingar um svifryk í rauntíma, samkvæmt loftgæðamæli við Strandgötu á Akureyri.

Besta leiðin til að koma í veg fyrir loftmengun er að fólk nýti sér vistvænar samgöngur, eins og að ganga, hjóla eða samnýta bíla. Þá er auðvitað frítt í strætó á Akureyri og er tilvalið að nota almenningssamgöngur á dögum sem þessum. Þannig fækkum við bílum á götunum og drögum úr svifryki.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan