Upptaktur að Jónsmessuhátíð

Jónsmessuhátíð verður haldin um næstu helgi á Akureyri. Dagskráin stendur frá kl. 12-23 á laugardag og frá 8.30-12.45 á sunnudag.

Upptaktur að hátíðinni er í kvöld kl. 21 í Akureyrarkirkju þar sem Brasshópur lýðveldisins leikur af fingrum fram. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.

Af viðburðum á sjálfri Jónsmessuhátíðinni um helgina má nefna tónleika Stefáns Elís á þaki inngangsins á Listasafninu, vellíðunarflot í Sundlaug Akureyrar, kvöldsiglingu með Húna II, myndlistarsýningar og listamannaspjall, ljúfa sunnudagstóna með bæjarlistamanninum Ásdísi Arnardóttur og nemendum hennar við Sundlaug Akureyrar, dans í Minjasafnsgarðinum, tónleika af öllu tagi og alls konar uppákomur víða í námunda við miðbæinn. Kynnið ykkur fjölbreytta dagskrána á jonsmessuhatid.is.

Bæklingur Jónsmessuhátíðar 2020 á pdf-formi.

Vegna gildandi reglna í samkomubanni er hátíðin ekki haldin í 24 klukkustundir samfleytt þetta árið. Dagskrá hátíðarinnar stendur því frá kl. 12.00-23.00 laugardaginn 27. júní og frá kl. 8.30-12.45 sunnudaginn 28. júní.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan