Mun fleiri skemmtiferðaskip og upplýsingamiðstöðin opnuð

Upplýsingamiðstöð ferðamanna verður opnuð í Hofi laugardaginn 1. apríl. Opið verður alla daga frá kl. 10-15 en afgreiðslutímin lengist í 8-16 yfir hásumarið (frá 1. júní til 31. ágúst).

Í upplýsingamiðstöðinni er fyrst og fremst lögð áhersla á að miðla upplýsingum til ferðamanna um Akureyri og næsta nágrenni en ferðaþjónustuaðilar um allt Norðurlandi eru hvattir til að koma með kynningarefni sitt í Hof svo sé hægt að segja frá öðrum helstu dásemdum landshlutans.

Það er vel við hæfi að opna upplýsingamiðstöðina á laugardag því þá er einmitt von á fyrsta skemmtiferðaskipi ársins til Akureyrar. Þar verður á ferðinni skipið Bolette með rétt um 1.400 farþega og 600 manna áhöfn.

Það stefnir í metsumar hvað varðar komu skipa og farþega þeirra. Spáð er um 25% fjölgun gesta með skemmtiferðaskipum frá því sem var fyrir heimsfaraldur Covid-19 eða um 185.000 gestum núna á móti 150.000 árið 2019. Skipakomum til Eyjafjarðar fjölgar um á að giska 40%. Þær voru 199 árið 2019 en verða um 280 í sumar með viðkomu á Akureyri, í Hrísey og Grímsey, og á Hjalteyri en þetta verður í fyrst sinn sem skemmtiferðaskip leggur leið sína til Hjalteyrar.

Það eru Hafnasamlag Norðurlands, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar. Þetta er sami hópur og stóð að opnun hennar síðasta sumar en því miður varð að loka upplýsingamiðstöðinni fyrir þremur árum þegar ríkið hætti að styðja reksturinn með fjárframlagi sínu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan