Uppáhaldssundlaug landsmanna

Mynd: Kristófer Knutsen.
Mynd: Kristófer Knutsen.
Sundlaug Akureyrar er ekki bara uppáhaldssundlaug Akureyringa, heldur Íslendinga allra. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Maskínu.
 
1.675 manns svöruðu spurningum um sundlaugar landsins og þessar fimm laugar reyndust vinsælastar: Árbæjarlaug og Laugardalslaug saman í fjórða og fimmta sæti með 6,6 prósent atkvæða, Lágafellslaug í Mosfellsbæ þriðja með 7,1 prósent, Sundlaug Kópavogs önnur með 7,4 prósent. Sundlaug Akureyrar situr nokkuð örugglega og ánægjulega í fyrsta sæti með 9,7 prósent.
 
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan