Ungskáldin 2018 kynnt

Frá ritlistarnámskeiði sem haldið var í haust á vegum verkefnisins. Leiðbeinendur voru Guðrún Eva Mí…
Frá ritlistarnámskeiði sem haldið var í haust á vegum verkefnisins. Leiðbeinendur voru Guðrún Eva Mínervudóttir og Snæbjörn Ragnarsson, Bibbi, úr hljómsveitinni Skálmöld.

Úrslit í Ritlistakeppni Ungskálda 2018 verða kunngjörð á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 6. desember kl. 17.

Alls bárust 85 verk í keppnina sem er tvöfalt meira en í fyrra. Engar hömlur voru settar á hvers kyns textum væri skilað inn, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurftu þó að vera á íslensku. Þriggja manna dómnefnd hefur farið yfir verkin og tilkynnir úrslit ásamt umsögn á fimmtudaginn og hljóta þrjú efstu sætin viðurkenningar og peningaverðlaun. Verðlaunahafar lesa verk sín og boðið verður upp á tónlistaratriði, kakó og smákökur.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem miðar að því að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Verkefnið er hið eina sinnar tegundar á landinu.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtsbókasafninu.

Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan