Ungmenni ræða um stöðu sína og framtíð

Wiktor Tomasz Wójtowicz Tómasson og Emil Þór Arnarsson.
Wiktor Tomasz Wójtowicz Tómasson og Emil Þór Arnarsson.

Tveir ungir Akureyringar eru nú staddir í Tyrklandi og taka þátt í verkefni sem snýst um að vekja athygli á aðstæðum og framtíð ungs fólks í Evrópu. 36 ungmenni frá Íslandi, Tyrklandi, Spáni og Portúgal eru samankomin og bera saman bækur sínar og ræða um helstu áskoranir og tækifæri.

Emil Þór Arnarsson og Wiktor Tomasz Wójtowicz Tómasson eru fulltrúar Ungmenna-Hússins á Akureyri, en þeir eru í hópi ungmenna sem hafa nýtt þjónustu þess og Virkisins. Í Ungmenna-Húsinu eru virkninámskeið fyrir þau sem það þurfa og vilja. Aðstaðan í Ungmenna-Húsinu er til fyrirmyndar því þar er líka æfingahúsnæði fyrir hljómsveitir, upptökuhljóðver, viðburðasalur, listaraými og fleira. Starfsfólk er til staðar frá morgni til kvölds á virkum dögum og er starfið afar fjölbreytt.

Ungmenna-húsið hefur verið leiðandi í starfi Virkisins, sem er samstarfsvettvangur 14 stofnana og deilda og miðast við aldurshópinn 16 til 25 ára. Markmiðið með Virkinu, sem hefur verið starfrækt frá 2017, er að grípa ungmenni sem falla á milli kerfa, aðstoða þau í atvinnuleit eða að hefja nám, og virkja þau til þátttöku í samfélaginu svo fátt eitt sé nefnt. Ljóst er að þetta starf hefur vakið athygli víða. Nordregio, rannsóknasetur Norrænu ráðherranefndarinnar um byggða- og skipulagsmál, útbýr nú handbók með verkefnum sem hafa reynst vel til að virkja ungmenni og er sérstök umfjöllun um Virkið.

Viðburðurinn sem er haldinn í Tyrklandi um þessar mundir er hluti af Erasmus verkefninu „New Era for Stronger Youth“. Víða um Evrópu er lögð mikil áhersla á að draga úr atvinnuleysi ungmenna sem hefur verið mikið vandamál eftir efnahagshrunið. Innan Evrópusambandsins voru yfir 4,2 milljónir ungmenna atvinnulaus árið 2016. Talin er þörf á að kortleggja enn frekar efnahagsleg og samfélagsleg áhrif þessa og virkja og styrkja ungt fólk. Leiðtogahæfni, áætlanagerð, gagnrýnin hugsun og frumkvæði er meðal þess sem þátttakendur fá að spreyta sig á í verkefninu.

Þetta er í senn áhugavert og krefjandi verkefni og eru aðstandendur Ungmenna-Hússins stoltir af þessum flottu fulltrúum Akureyrar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan