Ungmennaráð hitti bæjarráð

Ungmennaráð Akureyrar bauð bæjarráði til sín á fund í Rósenborg í gærkvöldi en þar hefur ungmennaráð aðsetur. Tilefni fundarins var meðal annars að spyrjast fyrir um áhrif nýlegra skipulagsbreytinga hjá sveitarfélaginu á frítímaþjónustu en nú hafa verið sameinuð undir heiti samfélagssviðs þau málefni sem áður heyrðu undir íþróttafulltrúa, Akureyrarstofu og samfélags- og mannréttindadeild.

Í þeim breytingum hefur ýmislegt verið nefnt og til dæmis hafa heyrst vangaveltur um hvort selja eigi Rósenborg. Áhyggjur ungmennana snerust einnig um jöfn tækifæri barna og ungmenna til frítímaþjónustu og vildu þau minna á að raddir barna eiga rétt á að heyrast í breytingum sem snerta þau beint. Bæjarráð upplýsti ungmennaráðið um að mikill vilji er hjá stjórnsýslunni um að gera vel í æskulýðsmálum almennt. Einnig lýsti bæjarráð yfir miklum vilja til að hlusta á og leita eftir röddum ungmenna í málum sem þau snerta.

Í lok fundar var svo gengið um Rósenborg en þar var mikið um að vera og í hverju herbergi verið að skapa, spila og spjalla. Greinilegt er að samfélagið er ríkt af skapandi og flottu ungu fólki. Í Rósenborg er meðal annars Ungmennahús fyrir 16 ára og eldri og félagsmiðstöð fyrir unglinga. 

Umræðuefni fundarins voru sett fram af ungmennaráði með þessum hætti:

  • Æskulýðsmál og þjónusta við börn og ungmenni eru mikilvæg og viljum við ræða áherslur frá bæjarráði vegna þeirrar þjónustu.
  • Í ljósi þeirra breytinga sem standa yfir í stjórnkerfi bæjarins, hefur ungmennaráð áhyggjur af því hvernig verður passað upp á gjaldfrjálst æskulýðsstarf á vegum sveitarfélagsins.
  • Borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórn Akureyrar tóku ákvörðun fyrir tveimur árum um að ungmennaráð Akureyrar og Reykjavíkurráð ungmenna skuli vinna að samsstarfi sín í milli líkt og bæjarstjórn Akureyrar og borgarstjórn ákváðu að gera sín í milli. Hefur bæjarráð hugsað sér að veita fjármagni til þess að heimsóknir geti átt sér stað milli ráðanna?

Á meðfylgjandi mynd eru talið frá vinstri: Anna Kristjana Helgadóttir, Hulda Margrét Sveinsdóttir, Snædís Sara Arnedóttir, Páll Rúnar Bjarnason, Brynjólfur Skúlason, Ari Orrason, Eiríkur Björn Björgvinsson, Kristinn Reimarsson, Gunnar Gíslason, Sóley Björk Stefánsdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Silja Baldursdóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan