Umsóknarfrestur vegna þátttöku í Listasumri á Akureyri 2019 rennur út sunnudaginn 26. maí.
Akureyrarstofa auglýsir eftir áhugaverðum og skemmtilegum hugmyndum að listasmiðjum og viðburðum fyrir Listasumar á Akureyri sem hefst 23. júní og lýkur 31. júlí 2019. Alls eru 22 styrkir í boði, rúmlega 1.200.000 kr.
Styrkjum fylgir afnot af rými í Deiglunni, Listasafninu á Akureyri, Davíðshúsi eða Rósenborg ásamt aðgangi að kynningarefni Listasumars og tækjabúnaði í ákveðnum rýmum.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrkina er að finna á heimasíðunni listasumar.is.