Frá vinstri: Guðmundur H. Sigurðsson framkvæmdastjóri Vistorku, Sif Konráðsdóttir aðstoðarmaður ráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, bæjarfulltrúarnir Ingibjörg Isaksen og Dagbjört Pálsdóttir, Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfismála hjá Akureyrarbæ og Guðmundur Haukur Sigurðarsson framkvæmdastjóri Vistorku tóku á móti Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra og aðstoðarfólki hans á Akureyri fyrr í dag.
Ráðherra var sýndur hinn svokallaði "Græni hringur" en í honum felst fræðsla um umhverfismál og stefnu Akureyrarbæjar í þeim efnum, starfsemi Vistorku, metanframleiðslu þar sem úrgangi er breytt í orku hvort sem um er að ræða nýjar eða gamlar matarleifar og starfsemi Moltu og Orkeyjar.
Ráðherra var m.a. gefin græna trektin sem er verkefni fjármagnað af Norðurorku og Orkusetri í samstarfi við Vistorku og Gámaþjónustu Norðurlands. Bæjarbúar hafa nú þegar tekið með sér heim 3.500 grænar trektir en hægt er að nálgast fleiri slíkar bæði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar og hjá Norðurorku.
Græni hringurinn hefur ekki aðeins vakið athygli þeirra sem starfa að umhverfismálum heldur hafa erlendir ferðamenn einnig sýnt skoðunarferðinni talsverðan áhuga.