Tökum vel á móti sumrinu

Akureyrarbær hvetur íbúa til að taka höndum saman við að hreinsa bæinn eftir veturinn.

Plokkdagurinn sem var haldinn 24. apríl sl. tókst frábærlega og skiluðu bæjarbúar um einu tonni af rusli í viðeigandi gáma á grendarstöðvar.

Vorhreinsun sveitarfélagsins er einnig í fullum gangi og eru götur sópaðar af miklum krafti.

Nú höldum við áfram og er næsta skref að snyrta garða og gróður í kringum heimili og vinnustaði og taka þannig á móti sumrinu með brosi á vör.

Gámar undir garðaúrgang hafa verið settir í hverfi bæjarins og verða þar til 23. maí. Gámarnir eru á eftirfarandi stöðum:

  • Hagkaup
  • Nettó Hrísalundi
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Bónus Langholti
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Krambúðin Byggðavegi

Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa gáma en einnig er tekið við garðaúrgangi og fleiru á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli.

Athugið að starfsfólk Akureyrarbæjar mun ekki fjarlægja garðaúrgang né annað rusl frá lóðamörkum.

Afgreiðslutími gámasvæðisins við Réttarhvamm breytist í næstu viku þegar sumaropnun tekur gildi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan