Tjaldsvæðisreitur– Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagssvæðið afmarkast af Þingvallastræti í norðri, Þórunnarstræti í austri, tjaldsvæði í suðri og Byggðarvegi í vestri. Í tillögunni er afmörkuð lóð fyrir um um 1.700 fm heilsugæslu þar sem nú eru bílastæði auk þess sem hótellóð stækkar og gert ráð fyrir nýrri viðbyggingu við vesturhluta hótelsins. Þá færist aðkoma frá Þingvallastrætis til vesturs og breytingar verða á afmörkun bílastæða, gangstétta o.fl.

Hægt er að skoða tillöguna hér.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 9. júní 2021. Athugasemdum er hægt að skila með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram eða skriflega til skipulagssviðs í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9.

Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsingar hjá Akureyrarbæ hér.
Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem eru birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar.

28. apríl 2021
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan