Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar

Frístundaráð Akureyrarbæjar auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar ráðsins. Tilgangurinn er að veita viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttismála í samræmi við Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.

Viðurkenningu geta hlotið:

Fyrirtæki sem hafa:

  • sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
  • unnið að því að afnema staðalímyndir kynjanna
  • sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
  • gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundna eða kynferðislega áreitni á vinnustöðum

Félög/félagasamtök sem hafa:

  • sérstaka stefnu/áætlun í jafnréttismálum
  • sett sér aðgerðaráætlun sem tæki til að vinna að framgangi jafnréttis kvenna og karla
  • gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynbundna eða kynferðislega áreitni innan félags
  • veitt leiðbeinendum/þjálfurum fræðslu um jafnréttismál
  • Einstaklingar sem hafa skarað fram úr í vinnu að jafnréttismálum

Þú getur skráð rökstudda tilnefningu á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is/jafnretti, eða sent tölvupóst á netfangið samfelagssvid@akureyri.is.

Rökstuddar tillögur skulu hafa borist fyrir 1. desember nk.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan