Til hamingju með daginn, konur!

Akureyrarbær óskar konum í sveitarfélaginu og um land allt til hamingju með kvennréttindadaginn 19. júní. Í dag eru 104 ár síðan konur, 40 ára og eldri, fengu almennan kosningarétt og kjörgengi á Íslandi.

Á kvenréttindadaginn verður frú Elísabetar Jónsdóttur kvenréttindakonu og tónskálds frá Grenjaðarstað minnst í Menningarhúsinu Hofi kl. 17 en hún hefði orðið 150 ára á þessu ári. Frú Elísabet verður heiðruð með því að flytja tónlist hennar og frumsýna heimildamynd um hana í Hömrum.

Frú Elísabet naut tónlistarmenntunar ung að árum í Húsinu á Eyrarbakka sem á þeim tímum var vagga menningar á Suðurlandi og þegar hún flytur að Grenjaðarstað má segja að hún endurskapi heimilið þar.

Frú Elísabet barðist fyrir kosningarétti kvenna á Íslandi, tók þátt í stofnun kvenfélaga, stofnaði blað til að skrifa greinar um málefni kvenna sem og önnur samfélagsmál. Hún var ein af þeim fyrstu til að fá lög sín birt á prenti og einnig til að gefa út sönglagahefti. Þrátt fyrir þetta allt hefur minning frú Elísabetar smám saman dofnað í tímans rás. Þó lifa sögurnar um ástarlíf hennar enn meðal fólks. Allt um það í heimildamyndinni Frú Elísabet.

Tónlistarflutningur verður í höndum:

Ásdísar Arnardóttur, selló
Fanneyjar Kristjáns Snjólaugardóttur, söngur
Kvennakórs Akureyrar, kórsöngur
Mariku Alavere, fiðlu
Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur, píanó og kórstjórn

Fínn klæðnaður er viðeigandi á þessarri hátiðarstundu og eru konur hvattar til að klæðast upphlut eða peysufötum.

Enginn aðgangseyrir er á viðburðinn - allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir í Menningarhúsið Hof kl. 17 í dag.

Viðburðurinn hlaut styrk frá listsjóðnum VERÐANDI.

Sjá nánar á heimasíðu Menningarhússins Hofs.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan