Fjórar nýjar hleðslustöðvar á Akureyri

Hleðslustöðvar við Ráðhús.
Hleðslustöðvar við Ráðhús.

Fallorka opnaði nýlega fjórar 2x22 kW hleðslustöðvar á þremur stöðum á Akureyri. Stöðvarnar eru þær fyrstu sem Fallorka opnar með greiðslulausn Ísorku. Til að nota stöðvarnar þarf annaðhvort að greiða með appi Ísorku í snjallsíma eða greiðslulykli þeirra. Hér eru nánari upplýsingar um appið. 

Verkefnið er hluti af styrkúthlutun Orkusjóðs og er samstarfsverkefni Fallorku, Vistorku, Norðurorku og Akureyrarbæjar. Rafeyri sá um uppsetningu og tengingar á stöðvunum. Tvær stöðvar eru við Ráðhúsið, ein við Sundlaug Akureyrar og ein við Amtsbókasafnið. Fallorka hefur í hyggju að reisa fleiri stöðvar á starfssvæði sínu á næstu misserum.

Mikil aukning hefur verið á fjölda rafbíla á Íslandi undanfarin misseri og eru þessar hleðslustöðvar kærkomin viðbót við hleðslustöðvaflóru bæjarins. Hér má nálgast upplýsingar um hleðslustöðvar á Akureyri.

Fallorka býður 50% kynningarafslátt á stöðvunum í september.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan